Von á tveimur ástarvikubörnum í Bolungarvík

Börnin tengjast ekki efni fréttarinnar.
Börnin tengjast ekki efni fréttarinnar. mbl.is/Jim Smart

Ástarvikan í Bolungarvík er haldin árlega með það að markmiði að fjölga Bolvíkingum. Staðfest hefur verið að von sé á tveimur ástarvikubörnum í Bolungarvík í maí.

Soffía Vagnsdóttir, frumkvöðull að hátíðinni, segir að mikil tilhlökkun ríki í Bolungarvík, enda hafi aðeins eitt ástarvikubarn fæðst síðan hátíðin var fyrst haldin. Þetta kemur fram á Bæjarins besta.

Segir Soffía að nú þegar sé farið að varpa fram hugmyndum fyrir næstu Ástarviku, enda sé ekki ætlunin að slaka á í þessu átaki til að fjölga Bolvíkingum.

Soffía segir einnig að verið sé að skoða samstarfsaðila að hátíðinni, svo hún megi verða enn veglegri. Bolvíkingar eru því hvergi af baki dottnir þó ekkert ástarvikubarn hafi komið í heiminn á síðasta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen