Breski poppsöngvarinn Sir Cliff Richards hélt tónleika í Laugardalshöllinni í kvöld, og var þetta lokahnykkurinn á langri tónleikaferð hans um Asíu, Afríku og Evrópu. Mikið fjölmenni hlýddi á Sir Cliff, en miðasala á tónleikana hófst í október í fyrra og seldist þá upp í stúku á tæpum hálftíma.