Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur hlotið inngöngu í hinn virta Juilliard listaháskóla í New York og er hann fyrsti Íslendingurinn til þess að hljóta inngöngu í leiklistardeild skólans.
Þorvaldur fór til New York í febrúar og sótti um inngöngu í nokkra leiklistarskóla þar í borg og var kallaður aftur til Bandaríkjanna um miðjan mars til að þreyta inntökupróf í Juilliard.
Þorvaldur Davíð fer með eitt aðalhlutverka í sýningunni Killer Joe, sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu, og þurfti vegna þessa að gera hlé á sýningum verksins fyrr í vetur.