Það eru 11 hljómsveitir sem munu keppa til úrslita á Músíktilraunum 2007 í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsinu. Úrslitakeppnin fer fram laugardaginn 31. mars kl. 17. Hljómsveitir sem fram koma eru SkyReports, Shogun, Spooky Jetson, Magnyl, <3 Svanhvít!, Loobyloo, Gordon Riots, The Custom, The Portals, Hip Razical og Soðin Skinka.
Sigurvegarar Músíktilrauna 2006 Foreign Monkeys munu koma fram og leika nokkur lög.
Í tilefni 25 ára afmælis Músíktilrauna verður Björg Sveinsdóttir með myndasýningu á skjávarpa með myndum frá síðustu 20 árum Músíktilrauna. Einnig verður Billi með ljósmyndasýningu af öllum hljómsveitum sem fram hafa komið á Músíktilraunum 2007, að því er segir í tilkynningu.