Það gerist ýmislegt í teiknimyndaröðinni South Park, sem auðvelt er að skilgreina sem smekkleysu. Í nýjum þætti reynir Elísabet Englandsdrottning til dæmis að velta Bandaríkjunum úr sessi sem stórveldi en þegar þessar fyrirætlanir hennar fara út um þúfur fremur hún sjálfsmorð með því að stinga byssu upp í munninn og hleypa af.
South Park hefur oft valdið uppnámi. Á síðasta ári hætti t.d. söngvarinn Isaac Hayes að leggja rödd sína við þættina eftir að honum blöskraði hvernig gys var gert að vísindakirkjutrúnni.