Búið er að slá kvikmyndaútgáfunni af 24 þáttunum á frest sökum þess að handritshöfundarnir hafa í nógu að snúast með sjálfa þættina um þessar mundir. Fyrr á þessu ári greindi leikarinn Kiefer Sutherland frá því að kvikmynd um harðjaxlinn Jack Bauer væri í undirbúningi.
„Það er ómögulegt að biðja handritshöfundana um að vinna bæði að þáttunum og koma með hugmyndir að frábærri mynd sem við getum tekið upp á milli þáttaraðanna,“ segir Sutherland, sem leikur Bauer í þáttunum.