Breska leikkonan Kelly Brook segist vera bjargvættur kvenna með stór brjóst. Brook hannaði nærfatalínu fyrir New Look verslanakeðjuna, með brjóstastórar konur í huga. Hún segist vita af eigin reynslu að erfitt sé fyrir brjóstamiklar konur að finna kynæsandi brjóstahöld með frumlegri hönnun.
Brook segir hönnunina framlag sitt til „stórbrjósta-samfélagsins“. Brook leikur nú í auglýsingum fyrir svitalyktareyðisframleiðandann Lynx, þar sem leitað er að mesta kvennamanni Bretlandseyja. Hún veitti nýverið þær upplýsingar að hún hefði gaman af því að klæðast ólíkum nærfötum, stundum eigin hönnun í bland við hönnun annarra. Fréttaveitan BangShowbiz færir þær fréttir af leikkonunni.