Vilja Becks án Posh

Viktoría Beckham
Viktoría Beckham Reuters

Bandaríski fatahönnuðurinn Sheila Cameron hefur blásið til herferðar til að fá knattspyrnukappann David Beckham til að skilja eiginkonu sína Victoríu eftir á Englandi er hann flytur til Bandaríkjanna. Cameron er annars helst þekkt fyrir það að hafa staðið á bak við auglýsingaherferð sem miðaði að því að frelsa leikkonuna Katie Holmes úr sambandi hennar við kvikmyndastjörnuna Tom Cruise.

Cameron hefur nú hannað stuttermaboli með áletrununum 'Free Becks' og 'Keep Posh' en áletruninni á þeim síðarnefndu mun vera beint til Breta. Þá hefur Cameron opnað heimasíðu þar sem hún selur bolina og annan varning með sams konar áletrunum. Munu m.a hundaföt og smábarnasnuð vera á meðal þess sem þar er boðið upp á.

Kunnugir segja að um grín sé að ræða en ekki er þó talið víst að Victoria, sem er einmitt vinkona Katie Holmes, kunni að meta þessar móttökur er hún flytur til „fyrirheitna landsins".

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að finnast þú svo umsetinn að þú eigir erfitt með að gera nokkurn skapaðan hlut. Ef þú missir af tækifæri fyrir hádegi færðu annað í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
4
Tove Alsterdal
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að finnast þú svo umsetinn að þú eigir erfitt með að gera nokkurn skapaðan hlut. Ef þú missir af tækifæri fyrir hádegi færðu annað í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
4
Tove Alsterdal