Leikararnir Owen Wilson og Kate Hudson eru kærustupar. Þetta staðfestir bróðir Owens, Luke, en mikið hefur verið spáð og spekúlerað í slúðurblöðum um Wilson og Hudson, hvort þau séu saman eða ekki. Hudson skildi við eiginmann sinn, Chris Robinson, í ágúst í fyrra og byrjuðu þá slúðurfréttir að berast af því að hún ætti í sambandi við Wilson.
Luke mun hafa svarað spurningu um bróður sinn og Hudson á þennan veg: „Hann virðist vera mjög hamingjusamur. Hún er afar viðkunnanleg stúlka.“ Owen hefur neitað því að hann eigi í ástarsambandi við Hudson, sem er 11 árum yngri en hann. Þau sáust hins vegar snæða hádegisverð föstudaginn síðastliðinn, á veitingastaðnum Ivy at the Shore í Santa Monica í Kaliforníu.
Sjónarvottur sagði tímaritinu People frá því og að þau hefðu vart getað sleppt því að koma hvort við annað og kyssast á meðan á málsverði stóð. Hudson og Wilson léku saman í kvikmyndinni You, Me and Dupree sem sýnd var í kvikmyndahúsum í fyrra.