Læknir Önnu Nicolu sætir rannsókn

Anna Nicole Smith.
Anna Nicole Smith. Reuters

Geðlæknir, sem sagður er hafa afhent fyrirsætunni Önnu Nicolu Smith lyfjaávísanir, sætir nú rannsókn læknaráðsins í Kalíforníu. Skjöl hafa verið birt sem sýna að geðlæknirinn, sem heitir Khristine Eroshevich, skrifaði upp á lyfseðla fyrir 11 lyf, sem síðar fundust í hótelherberginu þar sem Smith lést. Réttarkrufning leiddi í ljós að Smith lést vegna ofneyslu svefnlyfja.

Joshua Perper, yfirréttarlæknir í Browardsýslu á Flórída, sagðði að Smith hefði tekið ýmsar tegundir af svefnlyfjum, þunglyndislyfjum og róandi lyfjum.

Talsmaður læknaráðs Kalíforníu staðfesti, að verið væri að rannsaka starfsemi Eroshevich í kjölfar dauða Smith.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir