Færeyingurinn Jógvan Hansen fór með sigur af hólmi í söngkeppninni X-Factor, sem Stöð 2 hefur staðið fyrir og lauk í gærkvöldi. Jógvan keppti við systurnar Rakel og Hildi Magnúsdætur, sem skipuðu dúettinn Höru.
Sjónvarpsáhorfendur gátu greitt keppendum atkvæði og fékk Jógvan mikinn meirihluta þeirra í þættinum í gærkvöldi. Úrslitaþátturinn var sýndur í beinni útsendingu í Færeyjum en Færeyingar gátu ekki kosið í keppninni.