Harry prins er landi og þjóð „til skammar“

Harry kyssir kærustuna sína, Chelsy Davy, á krikketleik í dag.
Harry kyssir kærustuna sína, Chelsy Davy, á krikketleik í dag. Reuters

„Villingurinn“ Harry prins er á góðri leið með að verða Bretlandi og bresku þjóðinni til skammar, segir breski hirðljósmyndarinn Arthur Edwards. „Hann ætti að hegða sér miklu betur,“ sagði Edwards í viðtali við BBC, aðspurður um myndir af prinsinum illa til reika eftir næturklúbbaferðir.

„Ég held að Harry prins sé kominn hættulega nálægt því að verða landi og þjóð til skammar,“ sagði Edwards. „Hann veit að ef hann fer á næturklúbbana bíða ljósmyndararnir eftir honum. Þannig gengur þetta fyrir sig.“

Harry er 22 ára. Bresk blöð hafa kallað hann „villinginn“, enda hefur hann oft komist í blöðin að harla neikvæðu tilefni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Loka