Breski prinsinn Harry sást kyssa ónafngreinda konu er þau voru að horfa á enska krikketlandsliðið etja kappi við Ástralíu á Antigua-eyju í Karíbahafinu í dag. Engar fregnir hafa borist af því hver stúlkan muni vera.
En afi og amma Harrys, Elísabet drottning og hertoginn af Edinborg, hlýddu í dag á páskamessu í Windsor-kastala, ásamt fleirum um konungsfjölskyldunni.
Harry og Vilhjálmur bróðir hans eru báðir í breska hernum, og fyrir skömmu greindi varnarmálaráðuneytið frá því að Harry yrði brátt sendur til herþjónustu í Írak.