Björk Guðmundsdóttur hélt í kvöld tónleika Laugardalshöll, þá fyrstu hér á landi í sex ár. Þetta voru jafnframt fyrstu tónleikarnir í heimstónleikaferð Bjarkar til kynningar á nýrri breiðskífu, Volta, sem kemur út 7. maí. Meðal þeirra, sem komu fram með Björk var Antony Hegarty sem er Íslendingum að góðu kunnur en hann aðstoðaði Björk á nýju plötunni.