Bandaríski ljósmyndarinn Larry Birkhead segir ekki koma til greina að hann fallist á að deila forræði yfir dóttur sinni og Önnu Nicole Smith, Dannielynn, með móður Smith eða nokkrum öðrum. „Slíkt myndi gefa í skyn að ég væri vanhæft foreldri og það er é ekki. Ég hlakka til að gefa Dannielynn allt það sem hún þarf á að halda, alla mína ást og stuðning,” sagði hann.
„Það getur verið að við förum úr einni baráttunni í aðra en ég vona að sú verði ekki raunin vegna þess að barnið á bara einn föður og ég mun ekki standa í vegi fyrir því að aðrir fái leyfi til að heimsækja barnið og verða hluti af lífi þess, gangi þeim gott eitt til,” segir hann.
Tilkynnt var á Bahamaeyjum í gær að samkvæmt niðurstöðum erfðaefnisrannsóknar væri Birkhead faðir barnsins. Ekki hefur hins vegar enn verið kveðinn upp úrskurður um það hver muni fara með forræði yfir barninu, sem verið hefur í umsjón Howard K. Stern, lögfræðings og sambýlismanna Önnu Nicole.
Stern hefur lýst því yfir að hann muni ekki berjast fyrir því að fá forræði yfir barninu. „Ég er augljóslega mjög vonsvikinn en tilfinningar mínar til Dannielynn hafa ekki breyst. Ég mun gera hvað sem ég get til að tryggja Birkhead fái einn forræðið," sagði hann eftir að niðurstaða faðernisprófsins lá fyrir.
Virgie Arthur, móður Önnu Nicole hafði áður en úrskurðurinn féll gefið í skyn að hún myndi freista þess að fá sameiginlegt forræði yfir barninu með föður þess.. Eftir að úrskurðurinn lá fyrir sagði hún hins vegar. „Ég fagna því að fá að vita hver faðirinn er. Ég vil bara fá að vera amma. Málinu er ekki lokið en það er í betri farvegi en áður.”