Pitt vill hlúa að fremur en bæta við

Brad Pitt ásamt dótturinni Zahara.
Brad Pitt ásamt dótturinni Zahara. Reuters

Kvikmyndaleikarinn Brad Pitt er nú sagður hafa beðið sambýliskonu sína Angelinu Jolie um að gera hlé á ættleiðingum sínum til að hlúa að þeim fjórum börnum sem hjónaleysin eiga nú þegar. „Brad gæti ekki verið stoltari af Angelinu og fjölskyldu þeirra en hann vill að þau gefi sér tíma til að hlúa að því sem þau eiga nú þegar, segir ónefndur vinur parsins. „Brad er ekki á móti því að eignast fleiri börn, annað hvort með ættleiðingum eða ekki. Angelina vill fleiri en hann hefur lagt til að þau bíði svolítið, jafnvel í nokkur ár, áður en þau stækka fjölskylduna á ný.”

Angelina, sem er 31 árs, og Brad, sem er 43 ára, eignuðust dótturina Shiloh í maí á síðasta ári. Þá eiga þau hinn fimm ára Maddox sem er ættleiddur frá Kambódíu, og hina tveggja ára Zahara sem er ættleidd frá Eþíópíu. Í síðasta mánuði ættleiddi síðan Angelina hinn þriggja ára Pax frá Víetnam en Pitt hefur enn ekki verið gerður að forráðamanni hans líkt og hinna tveggja barnanna sem Jolie ættleiddi upphaflega á eigin spýtur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan