Plata Garðars Thórs Cortes sem kom út í Bretlandi í gær var um tíma í öðru sæti yfir mest seldu klassísku plöturnar í HMV búðunum. Útgefendur plötunnar binda nú miklar vonir við sunnudaginn, en þá er breski smáskífulistinn birtur. Vonast er til þess að plata tenórsins komist hátt á listann.