Sjónvarpsmennirnir Sverrir Þór Sverrisson og Auðunn Blöndal hafa setið sveittir við skriftir að undanförnu, en undirbúningur stendur nú yfir að tökum á nýjum gamanþáttum í anda Svínasúpunnar.
Meðhöfundur þeirra Sveppa og Audda er enginn annar en Sigurjón Kjartansson sem vann einmitt með þeim við gerð Svínasúpunnar.
Þá er einnig talið líklegt að Auddi muni gera aðra þáttaröð af Tekinn, þannig að það er eins gott fyrir fræga fólkið að fara að vara sig.