Óvissuferð til Parísar í afmælisgjöf

Viktoría Beckham varð 33 ára í gær og fékk hún Parísaferð í einkaþotu í afmælisgjöf frá Davíð, að því er breska blaðið The Sun greinir frá.

En þetta var hálfgerð óvissuferð því að Viktoría hafði ekki hugmynd um hvert leiðin lá þegar Davíð leiddi hana upp í bíl fyrir utan heimili þeirra í Madríd.

Vinur hjónanna sagði Sun allt um málið: „Viktoría hafði ekki hugmynd um hvað til stóð. Davíð lét pakka niður fötunum hennar og hafa allt tilbúið, en hann sagði henni ekki fyrr en á síðustu stundu hvert þau væru að fara.“

Davíð fór síðan með frúna í einkaþotu til Parísar þar sem hann hafði bókað svítu á Ritz, sem er uppáhaldshótelið hennar Viktoríu.

Svo var farið í verslunarleiðangur og Viktoría keypti sér kjól fyrir kvöldið, þegar þau borðuðu með vinum og ættingjum sem Davíð hafði fengið til að koma í tilefni dagsins.

Breskir fjölmiðlar segja þessa óvissuafmælisferð hafa kostað lítil 40.000 pund, eða sem svarar rúmum fimm milljónum króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan