Dómari í Los Angeles fyrirskipaði í gær Parísi Hilton að mæta fyrir rétt 4. maí, en þá verður tekin fyrir ákæra á hendur henni fyrir meint skilorðsbrot. Kann París að eiga fangelsisdóm yfir höfði sér. Í febrúar var hún staðin að akstri þrátt fyrir að hafa verið svipt ökuleyfi vegna ölvunaraksturs.
Frá þessu greinir E! Online.
Blaðafulltrúi Parísar, Elliot Mintz, segir að hún hafi ekki gert sér grein fyrir þeim tilteknu ákvæðum skilorðsins sem meinuðu henni að aka. Verði París fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér allt að þriggja mánaða fangelsi.