Lagið Earth Intruders, fyrsta smáskífan af nýrri breiðskífu Bjarkar, Volta, er nú fáanlegt á vefsíðunni grapewire.net. Lagið kostar 88 krónur og er selt á ólæstu, rafrænu sniði, vatnsmerkt en án DRM (stafrænna afritunarvarna). Lagið er bæði fáanlegt á mp4 sniði, fyrir iTunes eða iPod frá Apple, eða mp3 sniði sem hentar nær öllum stafrænum spilurum.