Brot úr síðasta þætti Saturday Night Live skemmtiþáttarins þar sem Björk kom fram og söng tvö lög er nú að finna á YouTube.com. Björk söng lögin Earth Intruders og Wanderlust af nýju plötunni sinni Volta.
Leikkonan Scarlett Johanson var gestastjórnandi þáttarins en Saturday Night Live er einn vinsælasti og lífseigasti skemmtiþáttur í bandarísku sjónvarpi og hefur verið sýndur á NBC sjónvarpsstöðinni frá árinu 1975.
Jónas Sen sem lék undir hjá Björk á laugardaginnn, bloggar á vefsíðu Bjarkar - bjork.com- um upplifun sína af þættinum og happasokka sem hann notaði ekki þegar á reyndi. Segist hann halda að flutningur laganna í sjónvarpsþættinum hafi gengið vel þótt ekki sé auðvelt að koma fram fyrir milljónir manna. Jónas segist hins vegar hafa verið ótrúlega rólegur og það sama hafi átt við um aðra í hópnum.
Flutningur Bjarkar í Saturday Night Live