George W. Bush, Bandaríkjaforseti, sýndi í gær að hann gæti orðið efnilegur afródansari þegar hann tók þátt í athöfn í Hvíta húsinu til að vekja athygli á afleiðingum malaríu. Meðal þeirra sem komu fram voru Kankouran West dansflokkurinn og Bush og Laura kona hans brugðu sér upp á svið og tóku sporið.