Bestu bönnuðu atriðin valin

Kvikmyndatímaritið Empire fagnar um þessar mundir 18 ára útgáfuafmæli sínu. Að því tilefni hafa blaðamenn tímaritsins tekið saman topplista yfir eftirminnilegustu atriðin í myndum bönnuðum innan 18 ára.

Á toppnum trónir atriði úr Aliens frá árinu 1979 þegar geimfarinn Hurt situr í rólegheitum við málsverð þegar lítil en ógeðsleg vera springur út úr brjóstinu á honum. Þeir sem þekkja til á tökustað segja að til að auka á áhrifin hafi restin af leikurunum á tökustað ekki verið látin vita af því hvað var í vændum þegar veran ógeðfellda birtist.

Í öðru sæti er afhöfðunin í The Omen frá árinu 1976. Hryllingurinn var aukinn í atriðinu með því að sýna það hægt og frá öllum sjónarhornum. Í þriðja sæti var svo umbreyting varúlfsins í An American Werewolf in London og í því fjórða meðferð ungu stúlkunnar á krossinum í hrollvekjunni The Exorcist.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert að uppgötva nýja hluti og þarft að gefa þér tíma til að njóta þeirra sem best þú getur. Þú átt á hættu að vera misskilinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert að uppgötva nýja hluti og þarft að gefa þér tíma til að njóta þeirra sem best þú getur. Þú átt á hættu að vera misskilinn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar