Mikil spenna ríkti í árlegri keppni í Kentucky í gær sem fór fram í tengslum við hátíðarhöld vegna Kentucky kappreiðanna. Í þetta skipti var þó ekki keppt á gæðingum heldur hjónarúmum. Hjól voru sett á rúmin og síðan var þeim ýtt eftir 300 metra langri keppnisbraut. Sigurvegarinn fær að taka þátt í skrúðgöngu í tilefni af kappreiðunum en hagnaður af keppninni fer til góðgerðarmála.