Eiríkur Hauksson og aðrir í íslenska Eurovisionhópnum lögðu í morgun af stað áleiðis til Helsinki í Finnlandi þar sem Eurovisionkeppnin fer fram í næstu viku. Ísland tekur þátt í undankeppni á fimmtudag ásamt 27 öðrum þjóðum um 10 sæti í úrslitakeppninni, sem fer fram 12. maí. Fyrsta æfing íslenska hópsins í Helsinki verður á morgun og í kjölfarið fer fram fyrsti blaðamannafundurinn.