Talið er að um 20 þúsund manns hafi farið úr öllum fötunum fyrir bandaríska ljósmyndarann Spencer Tunick á Zocalotorgi í miðborg Mexíkóborgar í dag. Tunick hefur öðlast frægð fyrir að ljósmynda nakið fólk í borgarlandslagi og skapa með því óvenjuleg mynstur.