Borgarstjórn Vínarborgar hefur fundið óvenjulega fjáröflunarleið fyrir bókasafn borgarinnar: símaþjónustu þar sem hægt er að hlusta á konu lesa kynlífslýsingar úr gömlum bókmenntum.
Þeir sem hringja í símaþjónustuna greiða 39 sent, jafnvirði 35 króna, fyrir að hlusta á leikkonuna Anne Bennent lesa „krassandi" kafla úr bókmenntum Viktoríutímabilsins en í safninu eru 1200 erótísk ritverk frá 18., 19. og 20. öld.