Nú eru tveir dagar þar til Eiríkur Hauksson syngur lagið Valentine Lost fyrir hönd Íslands í Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Eiríkur er sagður njóta talsverðra vinsælda í Finnlandi, ekki síst vegna fagmannlegrar framkomu sinnar og útgeislunar. Undirbúningur er að sjálfsögðu í fullum gangi, æft er á hverjum degi, en auk þess standa þátttakendur í ýmis konar kynningarstarfsemi. Í kvöld bjóða Norðurlandaþjóðirnar m.a. til veislu, en þar koma allir fulltrúar Norðurlandanna fram.