Órafmagnaður Eiríkur

Síðustu æfingar standa nú yfir fyrir undankeppni Eurovision söngvakeppninnar, sem haldin verður á morgun. Tvær æfingar fara fram í Helsinki í dag, sú síðari seint í kvöld en á þessum æfingum eru lögin keyrð í gegn líkt og um raunverulega keppni sé að ræða, hvað varðar lýsingu, útlit og klæðaburð. Þó var haft eftir Eiríki í Morgunblaðinu í dag að endanleg ákvörðun um klæðnaðinn verði ekki tekin fyrr en fyrir framan spegilinn á laugardag.

Íslenski hópurinn fær heldur lítinn tíma til að hvílast, síðasta æfingin er á morgun, og sjálf undankeppnin annað kvöld.

Hefð er fyrir því að Norðurlöndin sýni samstöðu þegar kemur að Eurovision, en í gær buðu þau til veislu þar sem boðið var upp á norræna Eurovision stemningu, bæði gamla og nýja, en Eiríkur tók að sjálfsögðu lagið, í órafmagnaðri útgáfu í þetta sinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Mundu að vinir og vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Mundu að vinir og vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Loka