Enn hefur David Beckham skipt um hárgreiðslu, en að þessu sinni er lítið orðið eftir af hárinu þar sem knattspyrnukappinn er kominn með burstaklippingu. Mætti hann með þessa nýju klippingu á æfingu í Madríd í gær, að því er fréttavefur Sky-sjónvarpsins greinir frá.
Mun Beckham hafa losað sig við platínuljósa hárið vegna þess að félagar hans i Real stríddu honum mikið á því og voru jafnvel farnir að kalla hann „Marilyn“, eins og í Marilyn Monroe.