Ekkert ofbeldi fyrir leikarabörnin

Brad Pitt og Angelina Jolie.
Brad Pitt og Angelina Jolie. Reuters

Brad Pitt og Angelina Jolie hafa bannað börnum sínum alfarið að horfa á þær myndir sem þau hafa leikið í og innihalda ofbeldi. Þá hafa þau einnig bannað börnunum að leika sér með leikfangabyssur. „Angelina vill ekki að börnin sjái myndir þar sem hún lætur ofbeldi líta vel út. Í flestum af hennar þekktustu hlutverkum gengur hún með vopn og beitir ofbeldi," sagði heimildarmaður í samtali við dagblaðið The Sun.

Pitt og Jolie kynntust við gerð myndarinnar Mr. and Mrs. Smith sem fjallaði um leigumorðingja. Þau eru nú stödd í Prag í Tékklandi þar sem Jolie er við tökur á myndinni Wanted þar sem hún leikur á móti Morgan Freeman. Myndin fjallar um mann sem kemst að því að faðir hans var leigumorðingi, og þjálfar sig í kjölfarið upp í sama starf.

Jolie á þrjú ættleidd börn og eitt barn með Pitt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir