Spænska leikkonan Penélope Cruz er nú sögð eiga í nánu sambandi við bandaríska rokkarann Lenny Kravitz. Cruz varð 33 ára þann 28. apríl síðastliðinn og hélt upp á daginn ásamt Kravitz á skemmtistað í New York, og síðar á heimili rokkarans þar í borg.
„Penélope á að vera farin til Evrópu til þess að sitja fyrir á myndum fyrir Mango fyrirtækið, en hún er alltaf að fresta því til þess að geta farið með Lenny á tónleikaferðalag. Þau hafa verið vinir lengi," sagði heimildarmaður í samtali við dagblaðið New York Post. „Ég tjái mig ekki um einkalíf skjólstæðinga minna," sagði blaðafulltrúi Cruz þegar hann var spurður um sambandið.
Cruz hefur áður átt í ástarsambandi við leikarana Orlando Bloom og Josh Hartnett. Hartnett hætti með leikkonunni Scarlett Johansson á síðasta ári og hefur nú ítrekað sést með dönsku fyrirsætuna Helenu Christensen upp á arminn.
Kravitz hefur ekki verið við eina fjölina felldur í kvennamálum, en frægt er ástarsamband hans við leikkonuna Nicole Kidman. Eins og margir vita eflaust er Kidman fyrrverandi eiginkona leikarans Tom Cruise, en Cruise var einmitt unnusti Penelope Cruz um tíma.