Bandaríska söngkonan Sheryl Crow hefur ættleitt nýfæddan dreng, að því er kemur fram á heimasíðu hennar í kvöld. Crow, sem er 45 ára, segir að drengurinn sé hálfsmánaðar gamall og sé nefndur Wyatt Steven eftir föður hennar og bróður.
Crow gekkst undir aðgerð vegna brjóstakrabbameins á síðasta ári skömmu eftir að hún og hjólreiðamaðurinn Lance Armstrong hættu saman eftir nokkurra ára samband.