Söngkonan Kylie Minogue neitar því alfarið að eiga í ástarsambandi við kvæntan mann, Alexander Dahm kvikmyndaleikstjóra.
Minogue og Dahm hafa sést að snæðingi saman, við hanastéladrykkju og fengu sér einnig bátsferð. Minogue segist aldrei hafa haldið fram hjá og að hún myndi aldrei eiga vingott við kvæntan mann.