Britney Spears hefur birt ný skilaboð á vef sínum til að þakka aðdáendum sínum fyrirbænir þeirra á „þessu erfiða tímabili.“ Birtir hún mynd af sjálfri sér með ljósa hárkollu, topplausri með hendurnar krosslagðar yfir brjóstinu. Sagðist hún njóta þeirrar blessunar að margir hugsuðu til sín.
„Ég skrifa þetta bréf til að segja öllum að bænir þeirra hafa hjálpað mér,“ segir Britney á vefnum. „Ég nýt þeirrar blessunar að ykkur þykir svo vænt um mig að ykkur er ekki sama um mig og ég mun áfram njóta þessarar birtu með ykkur öll mér við hlið á þessu erfiða tímabili.“
„Við erum öll ljós heimsins og verðum sífellt að veita öðrum innblástur og leita til æðri máttarvalda. Ég bið fyrir ykkur öllum, ástarkveðjur, Britney.“