Þriðja kvikmyndin um sjóræningjana í Karíbahafi var frumsýnd í skemmtigarðinum Disneylandi í Anaheim í Kalíforníu í gærkvöldi en myndin verður tekin til almennra sýninga í bandarískum kvikmyndahúsum um miðja vikuna. Talsverð eftirvænting ríkir vegna myndarinnar, ekki síst vegna þess að rokkarinn Keith Richards leikur í henni. Á myndinni sést Keith koma til frumsýningarinnar ásamt Patti Hansen, konu sinni, og Alexöndru dóttur þeirra.