Garðar Thor Cortes er á Íslandi þessa viku til að kynna útgáfu á plötunni Cortes sem kom í verslanir á fimmtudag hérlendis. Garðar mun einnig framleiða myndbönd við lögin „Nessun Dorma" og "Hunting High and Low" af plötunni á Íslandi, segir í tilkynningu frá Believer Music, útgáfufyrirtæki Garðars.
Síðustu vikur og mánuðir hafa verið gríðarlega annasamir hjá Garðari og var því gripið til þess ráðs að taka tvö myndbönd í einu og samnýta þannig tímann heima við kynningarvinnuna og myndbandsgerð. Það er Hannes Þór Halldórsson sem stýrir tökum á báðum myndböndunum en hann framleiddi myndbandið Nella Fantasia fyrir Garðar. Myndböndin verða tekin upp að mestu leyti í íslenskri náttúru eins og síðustu myndbönd Garðars og nú eru það Nesjavellir sem verða í aðalhlutverki.