Söngkonan og Idol-dómarinn Paula Abdul nefbrotnaði um síðustu helgi þegar hún reyndi að komast hjá því að stíga á hundinn sinn . Abdul mun hafa fallið frekar illa þegar hundurinn hljóð í veg fyrir hana og hlaut áverka á handlegg og hliðum niður að mjaðmagrind. Hundurinn meiddist ekki og Abdul mun vera að jafna sig, hún verður a.m.k. með í síðasta þætti vetrarins af American Idol sem sýndur verður vestanhafs á morgun.