Stjórnarfundur var haldinn hjá FTT í gærmorgun þar sem málefni vefjarins Tónlist.is voru meðal annars rædd. Samkvæmt heimildum Morugunblaðsins var þar samþykkt að kanna málið með tilliti til þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið af hálfu tónlistarmanna og kalla til fundar að viðstöddum Stefáni Hjörleifssyni og Eiríki Tómassyni framkvæmdarstjóra STEFs.
Mun málið vera allflókið og lúta annars vegar að höfundarrétti þar sem STEF er milligönguaðili og hins vegar að útgáfurétti þar sem tiltekið útgáfufélag höfundar skal koma greiðslum frá Tónlist.is til skila til rétthafa.
Mun sú skýring hafa komið fram á fundi FTT að ástæða þess að tónlistarmenn telji sig ekki hafa fengið greitt frá Tónlist.is í gegnum STEF sé sú að þær greiðslur séu skráðar sem sala á hringitón en ekki sala á tónlist af Tónlist.is.