Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Stefáni Hjörleifssyni, framkvæmdastjóra D3 miðla ehf.
Þrátt fyrir yfirlýsingar undirritaðs og fleiri aðila, s.s. Eiríks Tómassonar, lagaprófessors og framkvæmdastjóra STEFs, þar sem Tónlist var hreinsað af rógburði þessum, sá Morgunblaðið ástæðu til að draga að borðinu nokkra tónlistarmenn og útgefendur sem eru með samning við Tónlist.is um sölu á tónlist. Viðtöl þessi eru uppfull af staðhæfingum sem eiga ekki við rök að styðjast og Morgunblaðið hefur ekki séð ástæðu til að leita skýringa hjá forsvarsmönnum Tónlist.is vegna þeirra. Ég hef lítinn áhuga á að svara þeim á síðum Morgunblaðsins eða öðrum opinberum vettvangi enda virðist það ekki standa til boða af hálfu Morgunblaðsins. Ég mun hins vegar glaður leiðrétta allan misskilning gagnvart þessum aðilum sem eru að tjá sig opinberlega við hvern og einn. Leiði rannsókn á málefnum þessara aðila eitthvað misjafnt í ljós verður það að sjálfsögðu leiðrétt enda hefur Tónlist.is gefið það út frá upphafi að það vilja standa löglega að málum.
Það verður þó ekki hjá því komist að leiðrétta almennan misskilning sem komið hefur fram í fyrrgreindum viðtölum opinberlega.
1. Því er haldið fram Tónlist.is hafi verið veitt leyfi af hagsmunasamtökum til að selja úr gagnagrunni sem upphaflega hafi átt að vera líkt og bókasafn. Þetta er rangt. Tónlist.is var stofnað af undirrituðum árið 2002 í þeim tilgangi að selja tónlist rafrænt og í því skyni setti Tónlist.is upp gagnagrunn. Starfsfólk Tónlist.is hefur í á fimmta ár unnið að því að setja tónlist og viðtækar upplýsingar um tónlistarfólk í grunninn og nú eru til verðmætar upplýsingar á stafrænu formi sem hvergi voru til áður. Tónlist.is hefur ekki þegið styrki frá hagsmunasamtökum en er hins vegar með samning við Samtón, heildarsamtök tónlistarhreyfingarinnar um skráningu á ákveðnum upplýsingum og tónlistarskrám og þiggur fyrir það greiðslur sem þó eru aðeins lítill hluti af kostnaði við skráningu. Tónlist.is hefur frá upphafi borið allan kostnað af gagnagrunninum s.s. við uppsetningu, hýsingu og afritun. Samtónn hefur hins vegar aðgang að þessum grunni skv. fyrrgreindum samningi og útgefendur geta fengið umsamin gögn afhent úr grunninum sé þess óskað. Tilgangurinn með þessu samstarfi var að ekki þótti ástæða til að tvívinna ákveðnar upplýsingar og D3 því falið að skrá þær.
2. Því er einnig haldið fram að Sena hafi sölsað undir sig Tónlist.is í viðskiptalegum tilgangi. Þetta er alrangt enda er félagið sem undirritaður stofnaði utan um Tónlist.is ennþá rekstraraðili vefjarins. Ég hef stýrt fyrirtækinu frá upphafi og forsvarsmenn Senu hafa ekki komið þar að málum.
3. Þá er því haldið fram að útgefenda sé ekki getið á síðunni svo að það líti út fyrir að aðeins sé eitt útgáfufyrirtæki þarna inni. Þetta er óskiljanleg athugasemd enda erum við hjá Tónlist.is ákaflega stoltir af að geta boðið upp á breitt vöruúrval frá nokkur hundruð útgefendum, stórum og smáum. Þessi ákvörðun var tekin vegna þess að við töldum það ekki skipta almenning máli hvaðan tónlistin kæmi, heldur gæði hennar. Við höfum þó tekið tillit til þessarar athugasemdar samstarfsaðila okkar og nú birtist nafn útgefenda á vefnum.
4. Í föstudagsblaðinu er fjallað um gagnagrunn Tónlist.is. Þar er er viðtal við tvo fagaðila sem telja að enn sé eitthvað í land að skráning verði fullnægjandi. Það er rétt. Hins vegar er ekki við Tónlist.is að sakast þar, þar sem um er að ræða viðbótarupplýsingar sem Tónlist.is hefur bent á að vanti í grunninn, t.d. um flytjendur. Tónlist.is er hins vegar með ákveðnar skyldur við skráningu, og hefur staðið við þær að fullu.
Tónlist.is harmar að greiðslur skulu ekki hafa borist til listamanna en eins og fram hefur komið í yfirlýsingum er ekki við Tónlist.is að sakast. Þessi umræða virðist sem betur fer hafa ýtt undir að greiðslur muni berast fljótlega frá STEFi og Senu og vonandi fylgja aðrir útgefendur í kjölfarið. Ég efast ekki um að nokkrir þeirra hafi nú þegar greitt sínum listamönnum enda hafa þeir reglulega fengið uppgjör og greiðslur frá Tónlist.is.
Blaðamaður Morgunblaðsins sá sérstaka ástæðu til að taka það fram í upphafi símtalsins að ekki væri um neinar árásir á Tónlist.is að ræða enda á Morgunblaðið í harðvítugri samkeppni við D3 miðla ehf., rekstraraðila Tónlist.is. D3 rekur einnig Vísir.is, samkeppnisaðila mbl.is sem hefur undanfarnar vikur birt ómaklegar samanburðarauglýsingar. Morgunblaðið hefur verið ávítað af Modernus, Samræmdri vefmælingu fyrir að birta rangar upplýsingar sem gerðar eru til þess að villa um fyrir notendum og auglýsendum. Þá hefur mbl.is í auknum mæli væri að færa sig inn á dreifingu tónlistar á Netinu í samkeppni við Tónlist.is.
Þessi athugasemd blaðamanns Morgunblaðsins, sem hefur einnig verið einn af lykilmönnum mbl.is vakti mig til umhugsunar og skýrði raunar margt af þessum óskiljanlega áhuga Morgunblaðsins á þessu máli. Það skýrði líka í mínum huga hvers vegna Morgunblaðið sæi sérstaka ástæðu að nefna móðurfélag D3, 365 hf., samkeppnisaðila Árvakurs á baksíðu Morgunblaðsins sl. miðvikudag undir fyrirsögninni "Eigendur skulu bera ábyrgðina". Þar er vísað til greiðslna sem ekki áttu hafa hafa borist frá Tónlist.is en í sama blaði er yfirlýsing frá Eiríki Tómassyni þar sem hann lýsir því yfir að ábyrgðin sé STEFs en ekki D3. Dæmi nú hver fyrir sig.
Það hefur verið dapurlegt fyrir undirritaðan að fylgjast með þessari umræðu því einn helsti tilgangur með stofnun Tónlist.is var að bjóða löglegan valkost á Netinu til að listamenn fengju greitt fyrir hugverk sín. Þar rann mér blóðið til skyldunnar sem tónlistarmanni. Það hefur hins vegar verið ánægjulegt að fylgjast með árnaðaróskum notenda sem streyma inn því notendur tónlist.is eru í skýjunum með nýjan vef og framtíðin er björt fyrir okkur, tónlistamann og notendur í þessum efnum.
Ég vona að þessi leiðindamál séu nú til lykta leidd og ef eitthvað er óljóst bið ég listamenn um að hafa samband beint við mig.
Virðingarfyllst,
Stefán Hjörleifsson,
framkvæmdastjóri D3 miðla ehf.,
rekstraraðila Tónlist.is.