Garðar Thor Cortes tenórsöngvari kemur fram á stórtónleikum á vegum breska ríkisútvarpsins BBC í Birmingham 13. júní næstkomandi. Svo skemmtilega vill til að faðir Garðars og nafni hans, Garðar Cortes, verður hljómsveitarstjóri á tónleikunum.
Garðar Thor söng fyrir leik Derby County og WBA á Wembley-leikvanginum í Lundúnum á mánudaginn, að viðstöddum 80.000 áhorfendum. Hann segir flutninginn hafa gengið mjög vel.
Nánar er rætt við Garðar í Morgunblaðinu í dag.