Málarinn Odd Nerdrum lét ekki sjá sig á blaðamannafundi, sem boðaður hafði verið í Ósló í dag vegna útkomu nýrrar bókar um málarann. Mikil eftirvænting ríkti vegna þess að koma Nerdrums hafði verið boðuð og mættu tugir blaðamanna á fundinn en Nerdrum lýsti því yfir fyrir 5 árum að hann ætlaði aldrei framar að veita norskum fjölmiðlum viðtöl.