Robbie Williams er sagður vera kominn með nýja kærustu upp á arminn, bandarísku leikkonuna Ayda Field. Talið er að Williams og Field hafi átt í leynilegu ástarsambandi síðastliðna tvo mánuði, en þau kynntust í veislu í Los Angeles. Að sögn vina þeirra er sambandið orðið nokkuð alvarlegt.
„Hann hefur ekki verið svona hrifinn af stelpu mjög lengi og þau gera allt sem venjuleg pör gera, til dæmis að fara í bíó eða horfa á DVD," sagði vinur Williams í samtali við breska dagblaðið Daily Mirror. Field hefur m.a. leikið í Will og Grace.