Faðir leikkonunnar Lindsay Lohan, Michael, segir dóttur sína háða fjölmörgum lyfjum og fíkniefnum, þar á meðal kröftugu verkjalyfi sem gengur undir nafninu "Sveitamannaheróín." Þar er um að ræða lyf sem mun vera vinsælt til sveita í Bandaríkjunum.
Michael sagði í viðtali við E! Online að hann væri ánægður með að Lindsay fengi hjálp við að losna við verkjalyfin og fíkniefnin.
Hún er nú á meðferðarheimilinu Promises í Malibu, því sama og Britney Spears fór á, og segir Michael að þar verði hún í meðferð vegna áfengis- og verkjalyfjafíknar, en einnig fái hún meðferð og ráðgjöf vegna annarra efna, þar á meðal kókaíns.
Segir Michael að á Promises sé fylgt 12 skrefa prógrammi sem byggist að miklu leyti á boðorðum Guðs.
Þetta er í annað sinn á þrem mánuðum sem Lindsay fer í meðferð.