Það er ekkert kynslóðabil í rokki. Þetta hafa fjörutíu breskir ellilífeyrisþegar sýnt fram á en þeir hafa nú sent frá sér nýja útgáfu af Who-laginu My Generation við talsverðar vinsældir. Fór lagið m.a. beint í 26. sæti breska vinsældalistans um helgina.
Hópurinn nefnir sig The Zimmers og samanlagður aldur félaganna er 3000 ár. Aðalsöngvarinn, Alf er níræður. Hópnum hefur nú verið boðið til Ameríku og hann mun m.a. koma fram í sjónvarpsþætti Jay Leno.