Önnur kvikmyndin um sjóræningjana ógurlegu í Karíbahafi, Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest, vann til tvennra verðlauna á MTV-kvikmyndahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í gær.
Myndin þótti bera af öðrum og fékk verðlaun sem besta kvikmyndin. Þá fékk Johnny Depp verðlaun fyrir bestan leik, en hann leikur hinn undarlega heillandi skipstjóra Jack Sparrow.
Þegar Depp tók við verðlaununum ásamt Jerry Bruckheimer, framleiðanda myndanna, sagði hann: „Ég vil þakka þessum manni og Disney fyrir að hafa ekki rekið mig,“ segir á fréttavef BBC.
Á sama tíma trónir þriðja myndin um sjóræningjana At World's End á toppnum í Bandaríkjunum aðra vikuna í röð.
Myndin þénaði rúmar 43 milljónir dala um helgina, og alls hefur hún grætt yfir 216 milljónir dala.
Breski leikarinn Sacha Baron Cohen, sem er maðurinn á bak við fréttamanninn Borat, hlaut verðlaun sem besti gamanleikarinn.
„Því miður getur Borat ekki verið hér í kvöld, hann hefur fundið fyrir ágangi frægðarinnar að undanförnu og þurfti af þeim sökum að skrá sig í meðferð,“ sagði leikarinn þegar hann tók við verðlaununum.
Cohen hlaut einnig verðlaun fyrir besta kossinn sem hann deildi ásamt grínaranum Will Ferrell. En þeir læstu saman vörunum í gamanmyndinni Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby.
Ferrell og Cohen endurtóku leikinn á sviðinu og ekki leið á löngu þar til þeir voru farnir að rúlla eftir sviðinu í faðmlögum er þeir veittu verðlaununum viðtöku.