Tekjur af sýningum á kvikmyndinni Ocean's 13 í Bandaríkjunum um helgina námu rúmum 37 milljónum dollara, en myndin var sú mest sótta í bíóum þar. Næst mest sótta myndin um helgina var þriðja Pirates of the Caribbean-myndin, er var á toppnum tvær undafarnar helgar, og eru tekjur af henni þá orðnar samtals tæplega 254 milljónir dollara.
Sumarið hefur farið vel af stað hjá kvikmyndaframleiðendum í Hollywood, en þó dróst aðsókn nokkuð saman núna, aðra helgina í röð. Tekjur af 12 mest sóttu myndunum námu alls 133,6 milljónum dollara, sem er níu prósentum minna en tekjur voru sömu helgi í fyrra.