Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hefur fallið frá því að sýna þáttaröð um flutninga Viktoríu Beckham og fjölskyldu vestur um haf, og verður einungis sýndur einn klukkustundar þáttur um búferlaflutninga Beckhamfjölskyldunnar frá Madríd til Los Angeles.
Þátturinn, „Victoria Beckham: Coming to America,“ verður sýndur 16. júlí. Upphaflega var ætlunin að sýna sex þátta seríu, en breskir fjölmiðlar greindu frá því nýverið að snurða hefði hlaupið á þráðinn við þáttagerðina þegar Davíð Beckham var valinn í enska landsliðið í síðasta mánuði.