Þeir félagar í hljómsveitinni Sigur Rós fara iðulega ótroðnar slóðir en auk þess að leika tónlist berjast þeir fyrir verndun Kvosarinnar, útskrifast úr listaháskólum og halda myndlistarsýningar. Nú síðast hefur spurst út að Jónsi söngvari sé búinn að festa kaup á einu stykki torfbæ í nágrenni Stokkseyrar og hyggist gera hann upp með hjálp góðra vina. Hvað svo er ekki vitað.